29. janúar 2008 klukkan 17:12
Jæja núna eru bara u.þ.b. tveir mánuðir í að krílin komi í heiminn og óhætt að segja að manni er farið að hlakka ansi mikið til. Ég ætlaði að vera löngu búinn að henda hingað inn einhverjum sónarmyndum. Við förum svo aftur í sónar eftir tvær vikur og ef krakkarnir eru í stuði þá fæ ég kannski fleiri myndir, það er alltaf gaman.

Þessi mynd er frá því í byrjun janúar. Þarna eru þau búin að vera að vaxa í u.þ.b. 6 mánuði. Barna A er á efr myndinni og sést greinilega hversu fullkomið andlitsfall barnið hefur. Barn B er svo niðri og vildi bara horfa beint í myndavélina, greinilega ekki "camera shy".

Þessar myndir eru svo nokkuð eldri. Þarna er Sigga aðeins komin 3 mánuði á leið og það sást varla á henni, krakkarnir höfðu nóg pláss og gátu báðir verið saman á mynd, það er víst ekki hægt núna. Við erum svo með nokkrar aðrar myndir en ef þið viljið sjá þær þá verðið þið bara að panta tíma í kaffi, endilega kíkið við.
Kv.
Árni
Árni Falur Ólafsson
30. desember 2007 klukkan 23:36
Það Gamla
Kominn tími til að gera upp árið. Ansi mikið hefur breyst. Í janúar byrjaði ég í splunku nýju námi, þ.e.a.s. einkaflugmannsnáminu. Það kláraði ég svo (bóklega hluta þess) fyrir sumar byrjun. Eftir það hef ég svo verið að vinna í Elkó að selja raftæki, ég reyndi eitthvað að fá lögfræði vinnu út á gráðuna en það gekk ekki nógu vel, maður þarf kannski bara að ýta meira eftir því en í elkó eru fínir kallar og þetta er ágætis vinna. Ég var svo líka að reyna að klára verklega hlut einkaflugmannsins en vegna veðurs og annarra vandræða þá er það ennþá í gangi en ég á bara eftir að fara í lokaprófið. Ég byrjaði svo í atvinnuflugmannsnáminu í september og vonaðist ég til þess að það yrði skemmtilegt og það hefur heldur betur gengið eftir og er kallinn algjörlega að finna sig í þessu og þetta hefur bara gengið mjög vel. Sprengja ársins var þó án efa í ágúst en þá komumst við Sigga að því að við ættum von á barni og brostum auðvitað bara út að eyrum við þær fréttir eftir að hafa sagt smá "shit, shit, í alvöru, shit, ég trúi þessu ekki". Í október byrjun kom svo seinni sprengjan en þá fórum við í 12 vkina sónarinn og konan sagði við okkur "jaaaá, þetta er sem sagt í fyrsta sinn sem þið farið í sónar", við jánkuðum því en áttuðum okkur jafnframt á því að hún ætlaði að segja eitthvað fleira og vorum farin að óttast það versta. Þá hélt hún áfram "Þið vitið sem sagt ekki að þið eigið von á tvíburum?". Get ðe fokk out, hugsaði ég fyrst og ásakaði konuna um lygar en hún fussaði bara og bar þær frá sér. Þannig að núna í lok árs er Sigga komin rúma 6 mánuði á leið, kas ólétt og falleg og verður driver-inn minn um áramótin :)
Það Nýja
Eins fljótt og möguleiki er á, þ.e.a.s. um leið og veður leyfir þá verður farið í lokaprófið og einkaflugmannsskírteinið verður komið í rassvasann. Síðan við komumst að óléttu dúddelíinu þá hefur maður slakað örlítið á í ræktinni, þannig að það er kominn tími á að taka aftur á, það verður þó ekki áramóta heit þar sem að það er langt síðan ég ákvað þetta. Einhverntímann um mánaðarmótin mars - apríl þá koma svo tvö æðisleg kríli í heiminn tveir strákar eða stelpur við vitum ekki hvort en þetta verður allaveganan tvennt af hinu sama þar sem þetta eru eineggja tvíburar. Bóklega atvinnuflugmannsnámið heldur svo áfram á fullu og eftir því sem á árið líður þá fer maður að klára verklega hluta þess, safna tímum og fljúga eins og vitleysingur. Þannig að ef einhverju langar í pizzu í Eyjum, pylsu á Akureyri eða æðislegan ís á Stykkishólmi látið mig þá vita, því ég þarf hvort eð er að safna flugtímunum. Allt annað sem gerist verður suprise og ég get ekki beðið, 2008 verður gott ár.
Takk fyrir allt liðið og ég hlakka til að sjá ykkur á nýju ári.
Árni
Árni Falur Ólafsson
02. júlí 2007 klukkan 21:04
Hell yeah. Það er ekki oft sem ég blogga hérna, en við og við hendir maður inn línu. Í dag gerðist nefnilega sá merki hlutur að ég fór í mitt fyrsta sóló flug, sem að þýðir að ég var aleinn í fyrsta skipti að fljúga flugvél. Fór ég í þrjár snertilendingar og svo eina loka lendingu og þetta var awsome. Venjulega er ég með einhvern kennara hliðin á mér en núna var enginn þannig að vélin var alveg miklu léttari og sprækar. Það var svolítil umferð í loftinu þegar ég fór einn upp en Það var nú ekkert sem að ég ræð ekki við. Bújakasja. Þannig að núna er kjallinn bara hálfnaður með einkaflugmanninn, og svo verður bara brunað í atvinnuflugmanns námið eftir sumarið. Maður getur kannski farið að skutlast eitthvert með vini og fjölskyldu í ágúst, jafnvel fengið sér kók og prins á selfossi, pylsu á ólafsvík nú og jafnvel hreindýraborgara á eigilsstöðum. Hver þorir með.
Varð bara að deila þessu með ykkur öllum sem að kíkið hingað inná við og við.
Svo er annað. ÉG virðist eiga nokkra tvífara. Hafiði pælt í því að einhversstaðar í heiminum er að öllum líkindum manneskja sem að lítur nánast alveg eins út og þú. Einu sinni þegar ég var á spáni þá var ein íslensk stepla alveg 100% viss um að ég væri bara einn ágætis kunningji hennar, sem að ég náttúrulega var ekki og hún neitaði bara að trúa því, hélt bara að ég væri ruglaður. Svo er einn gaur í vinnunni sem að þykir víst nokkuð líkur mér og viðskipta vinir hafa verið nokkuð ruglaði þegar að þeir sjá mig og halda að ég hafi verið að enda við að afgreiða þá rétt áður þegar að það var í raun og veru tvífari minn. En þetta er ekki alveg búið því ég á víst einn enn þvílíkan tvífara, og það er enginn annar en Gay Arnie. Þetta kun vera alveg þveröfugur en fjallmyndarlegur maður alveg eins og ég sem að afgreiðir kaffi bolla af mestu list á starbucks í San Fransisco borg. Lindu stóru systur finnst eins og ég sé bara nánast úti í San fran hjá henni því við tveir erum víst svona rosalega líkir, nema náttúrulega í lífsstíl.
Anyhow njótið góða veðursins meðan það endist og ekki kvarta yfir því að það sé of heitt, það er bannað á Íslandi.
Árni
Árni Falur Ólafsson
19. mars 2007 klukkan 17:53
Enga vinnu að fá. Já þetta átti upphaflega bara að vera stutt stopp þar sem ég er að vinna þar til að ég fyndi mér aðra vinnu þar sem að menntun mín myndi eflaust nýtast eitthvað. Staðreyndin er hins vegar sú að það er bara sáralitla vinnu að fá. En ég er enn að leita.
En að öðru, þá hef ég mikið verið að pæla í að stofna Íslenska Michael Bolton aðdáenda klúbbinn fyrir karla. Ég hef verið að kanna málið og hef komist að því að við erum fjölmargir íslenskir gagnkynhneigðir karlmenn sem dýrkum "Boltann" eins og við köllum hann. Hins vegar lenda margir í aðkasti á götum úti og hef ég því ákveðið að vilji menn, þá er hægt að skrá sig í klúbbinn undir nafnleynd, svona ekki ósvipað félagsmönnum íslensku þjóðarhreyfingarinnar sem að stóðu að risa auglýsingu í New York Times á dögunum. Sé ég fyrir mér að við menn í "Boltaklúbbnum" gætum gert slíkt hið sama nema það myndi hljóða eitthvað öðruvís, t.d. "The Icelandic People want the Bolter ("Michael Bolton") to be a member of Icelandic friends"... eða eitthvað annað. En vilji menn skrá sig í klúbbinn sendið mér þá línu á arni03@ru.is ! Allar umsóknir verða teknar til greina, engin inntökuskilyrði nema skilyrðislaus ást á Michael Bolton og Karlmennska!
Árni Falur Ólafsson
03. febrúar 2007 klukkan 18:32
Jæja þá er maður loksins búinn að koma sér almennilega fyrir í nýju íbúðinni, í nýja skólanum og nýju vinnunni og lífið farið að ganga sinn vanagang og það er bara nokkuð þægilegt.
Flest ykkur vita væntnalega að ég er núna í fríi frá lögfræðinámi og er núna í flugnámi. Flugnámið er töluvert öðruvísi en lögfræðin. Ég tók þó áfanga í flugreglum sem að var svona byggt á reglugerðum og slíku og mynnti það mann all verulega á lögfræðina og var bara gaman af því enda getur lögfræðin verið mjög skemmtileg, og svo gekk mér líka svona þrusu vel í prófinu, maður er orðinn vel sjóaður í að leggja á minnið hinar og þessar reglur. En þetta er allt saman rosalega áhugavert og skemmtilegt, maður saknar eiginlega bara mest félagsskapsins úr HR en í bekkunum sem ég er í núna eru 8 manns með mér, þar af eru 5 þeirra milli 40 og 50, en þetta er ágætlega hresst fólk, bara á öðrum stað í lífinu.
Svo er maður þessa dagana að leita af nýrri vinnu. Vinnan sem ég er í er illa borguð og ekkert sérlega skemmtileg en félagsskapurinn er mjög fínn. Manni langar hins vegar að fá vinnu við eitthvað þar sem að menntun manns nýtist eitthvað. Ég hefði hugsanlega getað fengið vinnu á einni lögmannsstofu í gegnum kunningskap en ég var nokkrum dögum of seinn að sækja um og svo var þetta líka bara 50% vinna og þar sem að flugnámið er hellað dýrt þá þarf ég að vera í 100% starfi.
Í dag ætlaði ég samt að gera mér dagamun. Ætlaði hugsanlega að kíkja í Bása og slá golfkúlur, taka rúntinn, fara í bíó og kannski að grilla um kvöldið en þá er bara þessi heavy snjókoma úti, þannig að ég verð örugglega að sleppa golfinu, rúntinum og bíóinu. Djös.. hellvts... ég sem hélt að sumarið væri alveg að koma. Ég er sko alls ekki mikill aðdáandi snjósins, hann má vera í fjöllunum og ðats it. En ohh well maður lærir þá bara betur.
Vill ég að lokum þakka öllum fyrir sem komu í parýið okkar Siggu á dögunum fyrir komuna, þetta var frábær skemmtun og æðislega takk fyrir okkur, munið bara, Don´t be a stranger!!!
Árni
Árni Falur Ólafsson
18. janúar 2007 klukkan 04:07
Þá er kjallinn bara orðinn hálf fimmtugur, búinn að lifa í 1/4 af öld eða 25 ár. Ég held barasta að þetta verði besti aldurinn, ég finn það á mér að 25 er ár mikillar hamingju, skemmtana góðra hluta.
Ég og Sigga erum hins vegar frekar busy þessa dagana, Sigga er að fara í verklega sveinsprófið núna á sunnudaginn og ég er að vinna og er svo í skólanum til kl 22:00 á kvöldin alla virka daga. Þannig að ammælisveislan verður svoldið seint á ferðinni í ár. En ég og Sigga ætlum að halda upp á ammælið og innflutningspartý á laugardaginn þann 27. janúar.
Annars þá er ég frekar þreyttur og andlaus núna þannig að þetta blogg verður bara extra stutt. Hafið það gott.
Árni
Árni Falur Ólafsson
04. janúar 2007 klukkan 04:19
Árið 2007 byrjaði vel. Flugeldarnir sprungu með háum dunum og lituðu næturhimininn fallegum litum. Ég, Mamma, Pabbi, Dagný, Sverrir og Íris stóðum úti á svölum og dáðumst að þessu, lyftum svo upp kampavínsglösunum okkar skáluðum fyrir nýja árinu og knúsuðum svo hvort annað. Á þessum tímapunkti var allt frábært en það sem ég vissi ekki var ABBA myndi eyðileggja þetta fullkomna kvöld fyrir mér og mörgum öðrum.
Við strákarnir, kærustur og aðrir góðir vinir hittumst í reiðhöllinni þar sem að það átti sko að sletta úr klaufunum. Allt byrjaði vel. Strákarnir voru búnir að koma sér vel fyrir í stólunum í stofunni sem að leit út eins og að Risastór Konfettí maður hefði ælt yfir, en einhverjir af strákunum tóku víst með sér inni sprengju sem var víst svona rosalega öflug. Við sigga fáum okkur sæti algjörlega edrú og vit menn ABBA var á fóninum, "hmm enn fyndið, ABBA, hver er svona fyndinn að setja ABBA á" hugsaði ég með mér. Fljótlega kom svo í ljós að þetta var ekkert grín. Allar tilraunir til þess að skipta um tónlist voru ekki langlífar og mest allt partýið var ABBA spiluð í bland við nokkur vel valin júróvisjón lög sem eru nú flest hver ekkert eyrnakonfekt. Við strákarnir reyndum að þrauka og við vorum mjög duglegir, því þegar við loksins gáfumst upp þá voru nánast allir í "partýinu" farnir eitthvert annað. Stemmningin var svo slæm að maður drakk varla neitt, ég var nánast edrú þegar haldið var niður í bæ, hefði örugglega getað keyrt og sparað þennan 3700 kall í taxann. En ég Sigga og Robbi kíktum til Berglindar í annað fámennt partý en þar var fólkið víst bara nýfarið. Það var þó 1000 sinnum betra teiti en ABBA Ælan og svona bjargaði eiginlega kvöldinu.
Þrátt fyrir þessa byrjunarerfiðleika ársins þá er ég alveg viss um það að 2007 verði afburðarár. Ég ætla ekki að setja mér áramótaheit en ég ætla að setja mér áramótamarkmið og það er mjög frumlegt, ég ætla að reyna að verða fitt. Já þetta er markmið sem ekki margir setja sér og ég hef heldur aldrei áður sett mér þetta markmið en núna er manni farið að líða svolítið ófitt. Ég vann ókeypis djú djit sú (eða eitthvað svoleiðis) í tvær vikur fyrir 2 þannig að nú er bara spurning hvort að það langi ekki einhverjum með. En annars þá stefni ég á að dusta rykið af hjólinu mínu og fara að nota það meira.
Ég og Dagný ætlum svo örugglega að halda eitthvað upp á 25 ára ammælið okkar í mánuðinum og læt ég ykkur vita af því þegar það verður nelgt niður. Ég veit eiginlega ekki hvernig ég á að enda þetta blogg þannig að ég enda það bara á stiklu:
Nýja árið hafði er
Um partýið ég rabba
2007 verður súper
Miklu betri en ABBA
A-Dog
Árni Falur Ólafsson
12. nóvember 2006 klukkan 07:15
Fólk virðist vera frekar spennt fyrir því hvað ég ætla að taka mér fyrir hendur eftir áramót. Ég er eiginlega búinn að ákveða það en sú tilkynning verður að bíða aðeins lengur. Ef ég hitti ykkur í einkaspjalli þá skal ég segja ykkur frá því og þið vitið að það er alltaf heitt kaffi á könnunni hér í skipholtinu og ný eldaðar skonsur. Gútsí gútsí.
Í gær fór gamli kallinn í seinustu vísindaferðina sína í lagadeildinni (í bili alla vegana). Leiðin lá á suðurlandsveginn þar sem Mörkin lögmenn tók á móti okkur með opnum örmum, snyttum og ísköldum mjöð. Maður var fljótur að fara á barinn og renndi einum köldum niður, svo tveimur, svo þremur svo var ég hættur að telja. Þegar í bæinn var komið þá var svo líka ókeypis bjór á pravda þannig að auðvitað fékk maður sér þar líka. Ætli maður hafi ekki innbyrgt fleiri fleiri þúsundkróna virði af bjór þetta kvöldið - maður er alltaf að græða. Tónlistin dundi allt í kringum mann og maður byrjaði að hreifa littla fingur í takt, skömmu seinna var öll vinstri höndin komin á brjálað flug, áður en ég vissi af þá fór svo hægri fóturinn af stað, svo sá vinstri , loks hægri höndin og allt í einu var bara allur búkurinn kominn í þvílíka sveiflu og staddur á miðju dansgóflinu. Fólk var farið að góna á mig og klappa og allir vildu dansa við kappann. Ég held þessi lýsing sé nokkuð nærri lagi, en kjallinn var svo blékaður að ég ábyrgist á engan hátt að þessi atvikalýsing sé studd raunverulegum atburðum eða eigi við nokkur rök að styðjast. Eftir dansinn þá var svo bara labbað upp laugaveginn í skítakulda, komið við á devitos fengið sér eina sneið. Og bæ ðe vei ég held mér hafi tekist að móðga devitos gaurana með einhverri ansalegri spurningu sem að ekki verður endurtekin, en petsan var ljúffeng. Svo staulaðist maður bara heim. En það vakti ekki mikla lukku að fara undir sæng kaldur eins og íspinni. En svo rotaðist ég. Þetta er alveg merkilegt ef ég fæ mér 2 bjóra eða fleiri og legg mig, þá tekur það mig undir 15 sekúndur að sofna. Jæja en núna er ég bara farinn að babbla eitthvað.
Takk fyrir mig.
Árninn
Árni Falur Ólafsson
08. nóvember 2006 klukkan 00:24
Smá tilkynning til þeirra sem ekki hafa heyrt af þessu. Ég er að fara að taka mér pásu frá lögfræðinni. Ætla ég mér að prufa annað nám eftir áramót. Er ég búinn að velta þessu fyrir mér vel og lengi og komst loksins að ákvörðun. Kemur þetta til vegna vaxandi áhugaleysis á námsefninu og óánægju með hvernig meistaranáminu er háttað við Háskóla Reykjavíkur, án þess að ég fari nánar út í það. En taki ég aftur upp þráðinn í lögfræðináminu þá er ég ekki viss um að HR verði fyrir valinu. Ég stefni hins vegar á eins og áður sagði annað nám eftir áramót og er mjög spenntur fyrir því, það er þó ekki algjörlega niður nelgt hvort að af því verði. Nú út af þessu þá þurfum við Sigga að flytja úr skipholtinu einhverntíman eftir áramót þannig að ykkur getur farið að hlakka til innflutningspartýs eftir áramót á ókunnugum stað. Vanti ykkur lögfræðihjálp í náinni framtíð þá vísa ég ykkur til hennar Berglindar en hún ku vera framúrskarandi á því sviði. Þá þurfum við ekki að tala meira um það er það nokkuð? Það eru allir svo rosalega hneikslaðir og hissa að það er eins og að maður sé að koma út úr skápnum.
Se La Ví!
Árni Falur Ólafsson
26. október 2006 klukkan 18:23
Um þessar mundir eru kennararnir að funda. Þeir eru að skála í bjór, brosandi upp að eyrum og hlæjandi af okkur nemendum. Það er ástæða fyrir þessu. Það er vegna þess að í byrjun annar lögðu þeir á ráðin um að eyðileggja líf nemanda eins og þeir þekktu það með því að hrúga á þá verkefnum á sama tíma. Þegar kennararnir sjá svo aumingja nemendurna staulast inn í skólann með bauga niður fyrir nef, vegna svefnleysis þar sem að þeir vöktu alla nóttina við að vinna í nokkrum af þessum tugum verkefna, þá skella þeir upp úr, biðja nemandann um að stoppa sem hann og gerir og skelfur (það eru aukaverkanir svefnleysisins og mikillar kaffidrykkju), á meðan nær kennarinn í myndavél og smellir af, og sýnir svo hinum kennurunum á skrifstofunni myndina sem sönnun um að vel undirbúin áætlun þeirra virðirst vera að heppnast. "Bravó, vel gert, við skulum gera þetta aftur á næstu önn"... heyrist óma frá skrifstofum kennaranna.
Ég held að þetta sé ekki mjög fjarri raunveruleikanum. Það er ekki mikið majones á atvikalýsingunni, reyni að spara það fyrir aðrar sögur.
En svona er líf mitt í dag. Fullt af verkefnum sem að á að skila öllum á sama tíma, munnleg próf og skil á stefnu og greinagerð auk þess sem ég á svo að fara að dæma í máli, allt tekur þetta tíma sem að veldur því að ég er hvítari en veggirnir heima hjá mér með bauga, set mikið múslí í súrmjólkina mína þar sem að ég hafði ekki tíma til að fara á klósettið um daginn til að gera nr. 2 þannig að nú er allt stíflað, múslíið á að bjarga því. Of miklar upplýsingar segið þið, com on, farið að horfa á barnaefnið.
En á þessari þrautagöngu minni sé ég þó ljós. Það er þarna, ég næ ekki alveg í ljósið enda kemur það ekki fyrr en 28 nóv. þegar að skólinn er búinn hjá mér. Jebb öll próf og allt verða búin 28 nóvember og þá er bara mál að redda sér vinnu í des. Eftirvæntingin eftir þessum ljósa tímapunkti í lífi mínu heldur mér gangandi þessa dagana og líka kaffið, og nudd frá Siggu, og einstaka MSN spjall við vini og vandamenn... Það eru s.s. nokkrir hlutir, en allt í allt er daglega rútínan í dag ekkert voðalega skemmtileg.
fyrir utan þunglyndissjónarmið útkeyrðs og langþreytts laganema, þá elska ég ykkur öll og hlakka til að hitta ykkur....einhvern tíman, þegar ég hef tíma. Túdilú!
Árni
Árni Falur Ólafsson