30. apríl 2006 klukkan 05:39
Þessa dagana eru það prófin sem að taka allan tímann. Ég vorkenni Siggu svoldið því að hún þarf nánast að gera allt sem að gera þarf fyrir heimilið á meðan að ég sekk mér ofan í glósurnar og skólabækurnar. Þessa önnina var ég í 5 áföngum en valdi einn sem að er próflaus, bara verkefnin yfir önnina sem að gilda og er núna mjög ánægður með þá ákvörðun að hafa tekið þann áfanga, fer því bara í 4 próf í stað 5 annars. Svo var ég að klára fyrsta prófið mitt í gær, en það var munnlegt próf í upplýsingatæknirétti. Ég var búinn að læra þvílíkt fyrir það og taldi mig vera með þetta svona nokkuð á hreinu. En í háskólanámi þá þarf maður oft að velja og hafna hvað maður leggur áherslu á því það er nánast ómögulegt að komast yfir allt efnið. Ég fer svo í prófið og dreg spurningu sem er akkurat á því svæði sem ég lagði ekki mikla áherslu á, djös

. En kennarinn var svo fljótur að setja inn einkunnina og þetta var sjöa, og það er nú bara allt í lagi, maður er bara smá svekktur því að hefði ég dregið nánast hvaða aðra spurningu sem er þá hefði einkunnin verið mun betri. Ég hef nú alltaf verið mjög heppin með spurningar í þessum munnlegu prófum þannig að það hlaut að koma að því að ég lenti á einni erfiðri. En núna er eitt próf búið þannig að ég get farið að setja littla putta vinstri handar á BA gráðu skjalið. Úff ég get ekki beðið eftir að þessum prófum ljúki og svo eftir útskriftinni minni. Útskriftin verður 11 júní, en það er víst sunnudagur þannig að það verður ekki haldið mikið partý það kvöldið til að halda upp á það, kannski bara frekar næstu helgi á eftir. En Linda, Eggert og Dagur, Dagný og Sverrir, Mamma og Íris verða öll úti í útlöndum á útskriftardaginn

, pabbi er ekki enn búinn að fá flugáætlunina sína þannig að ég held í vonina að hann geti mætt. Það verður nú gaman fyrir hann að sitja í borgarleikhúsinu meðan að u.þ.b. 300 nemendur verða útskrifaðir, aldeilis skemmtilegt.
Já það er fátt annað sem að kemst að þessa dagana en skólinn en úr því verður bætt strax eftir prófin. Þá tekur maður því rólega í smá tíma, hringir í heimsflakkarana Dagnýju og Lindu sistas, og svo fer ég að vinna í leifsstöð í sumar, verð þar eitthvað að reyna að selja raftæki. Reyni líka að skrifa skemmtilegra blogg eftir próf, það er bara þannig núna að í prófatímanum þá fær tekur námsefnið yfir þessi 10% af heilastarfseminni sem fara venjulega í húmor þannig að þið verðið að fyrirgjefa húmorsleysið.
Laters
Árns.
Árni Falur Ólafsson
12. apríl 2006 klukkan 16:51
Jæja okkur Siggu leiðist ekki að tala um það hvað við erum alltaf í einhverju rosalegu átaki. Einu sinni var það danski kúrinn, svo var líka “ekkert hveiti kúrinn”, og núna nýjasta var “labbi kúrinn”. Við tölum eiginlega meira um að vera í átaki en við erum í átakinu sjálfu í raun og veru. Annars þá fór labbi kúrinn svoldið út um þúfur út af þessu ógeðslega kalda veðri. Við höfum samt náð að halda okkur við holla matinn á meðan, já ef þessar 5 fermingar sem við fórum í eru ekki taldar með, þar algjörlega missti maður sig yfir öllum ljúffenga matnum. En ég hugsaði með mér að við verðum nú samt að hreyfa okkur. Ekki á ég pening fyrir líkamsræktarkorti eða boot-camp og eins og ég sagði áðan þá er sjaldan hægt að labba úti út af kuldanum. Maður kemur alltaf aftur heim allur rauður í framan og kaldur með grílukerti á nefinu, það fyrsta sem maður hugsar er “heitt kakó núna” en það má víst ekki, of mikill sykur
. Þannig að ég fékk snilldar hugmynd. Ég reddaði mér prógrammi sem ég get gert heima og það hjálpar mér bæði í baráttunni við aukakílóin og á skemmtistöðum stórborgarinnar.
Þið spyrjið ykkur eflaust, “hvað er nú það”? Jú, ég reddaði mér dansleik í xbox. Þegar ég fór með pabba til NY í janúar þá keypti ég mér svona dansmottu. Rosalega flott svona græn og svört með örum á og svona sniðugu. Svo fékk ég mér núna dansleik og það er hægt að fara í svona “workout mode”, þar stillir maður þyngdina og tölvan telur svo kalóríurnar sem að maður er að brenna á meðan maður er í svaka sveiflu. Ég veit að margir ykkar hafa tapað fyrir mér í danskeppni í den, en núna eigið þið sko ekki séns, ég tek 50 mínútur á dag í stanslausan dans og stuð aleinn inni í stofu á brókinni í sokkunum og ber að ofan og svitna eins og svín, þetta tekur virkilega á. Næsta skref er svo bara að kaupa aðra mottu svo að ég get farið að keppa við ykkur vini mína í dansi, og látum þá tölvuna dæma hver er sigurvegarinn, þó svo við vitum úrslitin fyrirfram.
Ég er svo á eftir að fara að keyra upp á keflavíkur flugvöll. Er að fara þar í atvinnuviðtal. Unnsi og annar strákur sem við þekkjum sem heitir Snorri verða líklegast að vinna þar í sumar þannig að ég ákvað bara að slá til og sækja líka um. Ég verð þá hugsanlega að vinna í raftækja versluninni sem sölumaður. En lögfræði vinna er út úr myndinni þar sem að ég er að fara út til Spánar í sumar og þarf að komast í vinnu þar sem ég get fengið frí í sumar, vonandi að það sé möguleiki þarna. Jæja spurning um að taka smá dans áður en ég fer í atvinnuviðtalið, það væri nú ekki mjög flott samt að mæta allur sveittur í atvinnuviðtal, tek bara rólega sveiflu, eitthvað easy. Heyrumst seinna. Árni
Árni Falur Ólafsson
10. apríl 2006 klukkan 14:49
Ég og Sigga fengum okkur heimasíma og nettengingu frá Ogvodafone um daginn og byrjaði þetta allt saman að virka á mánudaginn fyrir viku. Allt var að virka vel og ég byrjaður að dánlóda eins og meiníak með rosa stórt bros á andlitinum. Ég vakna svo á föstudaginn fer í skólann er alveg svaka happý með nýju nettenginguna mína og er endalaust að monta mig, kem svo heim og ætla að halda áfram að dánlóda. EN ÞÁ VIRKAR EKKI NETIÐ. Fokkin sjit þetta var slap in the face. Enginn sónn í símanum og netið liggur líka niðri. Ég er búinn að hringja í ogvodafone á hverjum degi og ítreka þetta vandamál og fæ alltaf þau svör að tæknimenn séu ennþá að vinna í þessu. Dísús kristur, er ekki lágmarka að þetta virki allt saman í alla vegana viku áður en eitthvað fer úrskeiðis. Ég var kóngur í 4 daga með nýja síman og dánlódið mitt en núna er svo kominn fjórði dagurinn í röð þar sem að ekkert virkar. Þess vegna er ég núna í skólanum á netinu, en ég á ekki að mæta í skólann á mánudögum. Ég held ég þurfi bara að fara fram á skaðabætur fyrir óbeinu tjóni sem hlaust af þessu, þ.e.a.s. ég þurfti að eyða bensínpening í að fara í skólan til að komast á netið út af þessu klúðri hjá þeim. Annars þá þarf maður að passa sig í að missa sig ekki á símsvörunarfólkið því það gerði náttúrulega ekki neitt, en maður getur nú alveg verið brjálaður út af svona hlutum. En snúum okkur að öðrum hlutum.
Það er sorglegt þegar að 24 ára ungur maður kemst að því að hárið sé farið að þynnast. Ég komst að þessu fyrir nokkru síðan. Tók eftir því að smá blettur á hnakkanum var farinn að þynnast verulega. Hvað á maður svo til bragðs að taka? Nokkrar leiðir eru tiltækar:
1) Byrja strax að safna fyrir hárígræðslu, ekkert jafn flott og að vera með rassahár á hausnum.
2) Fara að skoða hárkollur, finna sér einhverja flotta littla og stækka svo bara við eftir því sem skallinn stækkar.
3) Skipta um trú og ganga í gyðingatrú, því þeir eru með svona kollhúfur og þær ættu að kovvera blettinn.
4) Missa sig úr stressi yfir þessu og ekki láta sjá sig á almanna færi.
5) Dísellinn. Taka Vin Diesel sér til fyrirmyndar. Raka allt hárið af hausnum og kaupa sér kort í World class og ver hel massaður.
6) Kóm óver. Fátt er jafnfallegt og þegar menn safna huge síðu hári öðrumegin og greiða það svo yfir á hina hliðina þannig að ekkert sést í skallann, mjög sexy og mjög ódýrt.
7) Húfu trykkið. Vera alltaf með húfu á hausnum, og þegar ekki þykir við hæfi að vera með húf, þá er sniðugt að vera með svona höfuðklút eða nælon sokk eins og geingsta.
8) Fela skallablettinn með hendinni. Um leið og maður er orðinn þreyttur í hægri hendinni þá skiptir maður og notar þá vinstri, þetta æfir líka upphandleggs- og brjóstvöðvana þannig að
það er ekki hægt að tapa á þessu.
9) Kaupa sér sprey. Fara út í búð og kaupa sér sprey með sama lit og hárið á manni er, spreyja svo yfir blettinn og enginn tekur eftir nein, ja nema það fari að rigna.
10) Líta út eins og asni með skalla, láta krakka og benda á þig og hlæja, vera niðurlægður opinberlega og af nánustu fjölskyldumeðlimum og vinum í boðum.
Ég hef ekki alveg gert upp við mig hvað ég muni gera ef að það kemur til þess að skallablettur myndist á þessu þunna svæði en hallast mjög að leið nr. 6 eða 8. Annars þá tek ég bara svona hár-vítamín. Áður þá fór ég mjög mikið úr hárum, alltaf þegar ég strauk hendinni í gegnum hárið þá voru svona 15 hár í hendinni á eftir (nice) en eftir að ég fór að taka vítamínin þá kemur bara ekki neitt (voðalega hljómar þetta auglýsingalega). En ég held að aðalmálið sé bara að vera lige glad. Ef skallinn kemur þá kemur hann og maður prufar nýjar leiðir til að vera áfram sexy as hell. Að lokum vill ég minna ykkur á að taka þátt í testinu mínu hérna:
http://www.quizyourfriends.com/linkquiz01.php?quizname=060404080658-256584&
og kveð ykkur svo í þessu bloggi með vísu við hæfi.
Vin Diesel og Bruce Willis
Ber-af aðra kalla
Kynæsandi og það aldeilis
Ef þú ert með skalla
Árni
Árni Falur Ólafsson
04. apríl 2006 klukkan 16:15
Ég og Sigga vorum um daginn að bóka flugsæti fram og til baka til Alicante. Já góðir félagar, stefnan er tekin út með múttu, pápa og littlu systur. Lendum á flugvellinum í Alicante, sem er okkur benidorm förum góð kunnugur. Benidorm er hins vegar norður af Alicante en ég fer suður í heitara loft. Úje, verðum þarna nálægt borg sem heitir Torrevieja í sumarhúsi sem að mamms og pabbs eiga með ömms, afs og einu stykki af frænds. Farið verður út 21. júní og komið heim 5 júlí. Úff hvað það verður gaman, manni er bara farið að hlakka til við að skrifa um þetta. Þetta verður svona nett tsjill með famelíunni og einstaka bjórir inn á milli, ekki slæmt.
En nóg um mont. Það er erfitt að fá lögfræðivinnu fyrir lögfræðinema. Ég sendi út svona 10 umsóknir í hin ýmsu störf og á flestum stöðum þá var umsóknin sett efst á huges búnka með 100 öðrum umsóknum. Samkeppnin er því hörð. Ég er búinn að heyra í svona 3 af þessum 10 og það voru ekki jákvæðar fréttir. Ég get hins vegar ekki beðið endalaust og bjallaði því í Unnsa um daginn og ákvað að skella mér bara í málarvinnu með honum og Robbs ef það er hægt. Ég hugsa að það verði þvílíkt fjör, ég er búinn að vera að æfa mig að hella upp á kaffi og baka muffins fyrir Unnsa og Robba svo ég verði nú almennilega tilbúinn fyrir sumarvinnuna.
Arnórinn fleigði skemmtilegri hugmynd upp á rbklíku síðunni, hvort það væri ekki mál að skella sér bara út að borða um helgina. Ég veit nú ekki með Hereford eða Argentínu eins og hann stakk upp á, kannski frekar í sumar þegar að buddan er ekki eins létt. En á 20 afmælinu mínu þá fórum við á grill? eitthvað staðinn hliðin á gauk á stöng. Þar voru bara ágætis steikur á fínu verði, ég mæli því með þeim stað, annars er ég opinn fyrir öllu sem að kostar ekki 30.000 kr fyrir steik og kók. Á ekki svo bara að reyna að smala eins mörgu fólki og við þekkjum, verðum svona um 30 og fáum bara hópafslátt.
En eftir matinn þá getur liðið tekið stefnuna heim til okkar Siggu opnað bjóra, hlustað á tónlist og skrallað eitthvað. Verður ekki að vera svona eitt lokaskrall áður en við lokaprófin koma? Anyways ef þið eruð til þá er ég til “SkrallMeister” 2006.
Hvað finnst þér?
p.s. að lokum þá setti ég hér inn próf um hversu vel þið þekki mig, endilega takið það!!! Hér er linkurinn:
http://www.quizyourfriends.com/linkquiz01.php?quizname=060404080658-256584&
Árni
Árni Falur Ólafsson
04. apríl 2006 klukkan 14:17
Planið er ekki flókið. Hérna ætla ég bara að skrifa ýmislegt sem að drífur á mína daga og ætla ég að reyna að vera duglegur að skrifa.
Síðan hjá okkur strákunum (blog.central.is/rbklikan) hefur verið eitthvað slöpp undanfarið en vonandi hrekkur hún í gangið, Unnsi kom sterkur inn um daginn og tók góða rispu í blogginu þar en ég nenni ekki vera nánast sá eini sem skrifar greinar þarna inn þar sem að það átti að vera síða fyrir hópinn. En þetta hérna er svona einkabloggið mitt.
Hér verður því ruglað og bullað en ef ykkur vantar svör við einhverjum lögfræðilegum spurningum þá megið þið líka senda þær á mig og ég skal svara ykkur eins fljótt og vel og ég get.
Jæja núna er kaffi búið og tími er að fara að byrja aftur, læra læra.
Blogga meira leita.
Árni Falur Ólafsson