Auglýsing

Könnun

Hvað finnst þér að ég ætti að læra?

Laga Læti: p2p

Þið sem að dánlódið höfundaréttavörðu efni á netinu megið vita að skv. 11. gr. höfundalaga nr. 73/1972 þá er ykkur heimilt að gera eintak af birtu verki til einkanota. Þið megið hins vegar ekki dreifa efninu því það brýtur á einkarétti höfundar til dreifingar á verkum sínum sbr. 3. gr. höfundalaga. Ef þið eruð að dreifa efni þá megið þið eiga von á allt að 2 ára fangelsisvistun og sektum sbr. sérrefsilagaákvæði í 54. gr. höfundalaga, og upptöku tölvubúnaðar sbr. 1. tl. 1. mgr. 69. gr. almennra hegningalaga nr. 19/1940. Rétt er þó að benda á það að það er alltaf ólöglegt að sækja sér eintak af tölvuforriti sbr. 4. tl. 11. gr. höfundalaga.
Fo my nigguz: If ya get caught, dey gonna take yo money, yo gear, slap yo ass into prison fo up to toe yeas, were yo will get butt fu**ed, and don´t be messin wit dhose compu. progs, day dangerous.

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Aftur kominn í farið.

03. febrúar 2007 klukkan 18:32

Jæja þá er maður loksins búinn að koma sér almennilega fyrir í nýju íbúðinni, í nýja skólanum og nýju vinnunni og lífið farið að ganga sinn vanagang og það er bara nokkuð þægilegt.
Flest ykkur vita væntnalega að ég er núna í fríi frá lögfræðinámi og er núna í flugnámi. Flugnámið er töluvert öðruvísi en lögfræðin. Ég tók þó áfanga í flugreglum sem að var svona byggt á reglugerðum og slíku og mynnti það mann all verulega á lögfræðina og var bara gaman af því enda getur lögfræðin verið mjög skemmtileg, og svo gekk mér líka svona þrusu vel í prófinu, maður er orðinn vel sjóaður í að leggja á minnið hinar og þessar reglur. En þetta er allt saman rosalega áhugavert og skemmtilegt, maður saknar eiginlega bara mest félagsskapsins úr HR en í bekkunum sem ég er í núna eru 8 manns með mér, þar af eru 5 þeirra milli 40 og 50, en þetta er ágætlega hresst fólk, bara á öðrum stað í lífinu.
Svo er maður þessa dagana að leita af nýrri vinnu. Vinnan sem ég er í er illa borguð og ekkert sérlega skemmtileg en félagsskapurinn er mjög fínn. Manni langar hins vegar að fá vinnu við eitthvað þar sem að menntun manns nýtist eitthvað. Ég hefði hugsanlega getað fengið vinnu á einni lögmannsstofu í gegnum kunningskap en ég var nokkrum dögum of seinn að sækja um og svo var þetta líka bara 50% vinna og þar sem að flugnámið er hellað dýrt þá þarf ég að vera í 100% starfi.
Í dag ætlaði ég samt að gera mér dagamun. Ætlaði hugsanlega að kíkja í Bása og slá golfkúlur, taka rúntinn, fara í bíó og kannski að grilla um kvöldið en þá er bara þessi heavy snjókoma úti, þannig að ég verð örugglega að sleppa golfinu, rúntinum og bíóinu. Djös.. hellvts... ég sem hélt að sumarið væri alveg að koma. Ég er sko alls ekki mikill aðdáandi snjósins, hann má vera í fjöllunum og ðats it. En ohh well maður lærir þá bara betur.

Vill ég að lokum þakka öllum fyrir sem komu í parýið okkar Siggu á dögunum fyrir komuna, þetta var frábær skemmtun og æðislega takk fyrir okkur, munið bara, Don´t be a stranger!!!


Árni

Árni Falur Ólafsson
Engin athugasemd